top of page
  • White Facebook Icon
  • White Instagram Icon
20220331_204044_edited_edited.jpg

Járnkell ...

IMG_20200603_101301_519 (1)_edited_edited.jpg

Í fornum norrænum sögum var orðið Kell eða Ketill notað í merkingunni "Hjálmur". Járnkell má því túlka sem hjálmur úr járni auk augljósrar tengingar í mitt eigið nafn sem er bara skemmtilegt. Einkunnarorðin "Járnsmíði og allskonar" skýra sig sjálf og vísa líka til annarra verkefna sem gefa lífinu lit og fjölbreytni

Að smíða er skemmtilegt hobbí en frá því ég man eftir mér hef ég verið að smíða og föndra alls konar hluti.

Sem 16 ára stubbur fékk ég vinnu í járnsmíðadeild Vegagerðarinnar hjá miklum meistara, Ingimar Sigurðssyni nágranna mínum. Þar lærði ég ótrúlega mikið á stuttum tíma um alls kyns járnsmíði. Nú örfáum árum síðan hefur þessi kunnátta fengið að brjótast upp á yfirborðið og er orðin að gefandi verkefni sem skapar mér atvinnu og viðurværi.

 

Á síðunni eru nokkur dæmi um þessar smíðaæfingar og fleiri eiga eftir að bætast við síðar. Ég hef mest smíðað alls konar gagnlega hluti úr járni fyrir ýmsa aðila, s.s. crossfit- og æfinga stöðvar þar sem ég  hef sett upp alls konar upphífingaslár, hillur, rekka og standa fyrir lóð og margt fleira skemmtilegt dót. Hurðir og veggir úr járni og gleri hafa verið áberandi. Innréttingar í verslun Fjallakofans og víðar voru mjög skemmtilegt verkefni. Aðrir hlutir eru úr öllum áttum, borð og stólar, handklæðaslár, fataslár ofl. ofl.

 

Þetta er skemmtilegt hobbí/vinna og verður það áfram.

Kveðja, Keli

Hrafnkell Sigtryggsson

20210707_164800.jpg

Vertu í sambandi

Viðvera

Mán - fös

Eftir þörfum

Um helgar

Helst ekki

Upplýsingar

Sími:

669 7131

Tölvupóstur:

Staðsetning

Þingás 51

110 Reykjavík

Ertu með 
hugmynd?

© 2022 Járnkell.is - Vefur frá Wix.com

bottom of page